Harðar deilur um kolmunna

Tillaga fulltrúa ESB um kvótasetningu kolmunna fór öfugt ofan í …
Tillaga fulltrúa ESB um kvótasetningu kolmunna fór öfugt ofan í Norðmenn. mbl.is/Börkur Kjartansson

Fulltrúar Evrópusambandsins hafa komið með tillögu að kvótasetningu kolmunna sem myndi skerða hlut Norðmanna töluvert en hagur Evrópusambandsins og Færeyja myndi hins vegar vænka í öfugu hlutfalli. Greint er frá þessu á miðlinum Kystmagasinet.

Tillaga ESB var lögð fram á fundi strandríkja um skiptingu uppsjávarafla í Norðaustur-Atlantshafi sem haldinn var í London 10.-11. júní en samkvæmt henni myndi kvóti Noregs í kolmunna lækka úr 26,2% í 5,8%. Strandríkin sem gera kröfu um hlutdeild í uppsjávarafla á þessu svæði eru Noregur, Grænland, Færeyjar, Bretland, Evrópusambandið og Rússland, auk Íslands. Ofveiði uppsjávarstofna í Norðaustur-Atlantshafi er viðvarandi vandamál.

Norðmenn í uppnámi

Tillagan olli mikilli reiði hjá norsku sendinefndinni og varð til þess að ekki var hægt að klára fyrirliggjandi mál fundarins. Engar viðræður áttu sér stað um aðrar uppsjávartegundir á borð við makríl og síld. Norðmenn sökuðu fulltrúa ESB um að grafa undan viðræðunum.

„Þessi tillaga brýtur í bága við alþjóðlega samninga og viðurkennd viðmið um sanngjarna skiptingu. Þetta er grafalvarlegt og ógnar framtíðarsýn um sjálfbæra nýtingu fiskistofna á alþjóðlegum hafsvæðum,“ segir Audun Maråk, framkvæmdastjóri samtaka norskra útgerðarmanna, Fiskebåt.

Útbreiðsla kolmunna makríls og norsk-íslenskrar síldar.
Útbreiðsla kolmunna makríls og norsk-íslenskrar síldar. Kort/mbl.is

Maråk segir að Noregur hafi haldið sig við áður samþykkta hlutdeild í kjölfar þess að fyrra samkomulag strandríkja um kolmunna liðaðist í sundur fyrir nokkrum árum. Önnur ríki hafi hins vegar aukið sinn kvóta einhliða. Hann segir að tillaga ESB feli í sér „fjandsamlega og ósanngjarna“ framkomu gagnvart Noregi.

Fiskebát telur að stjórnvöld ættu að mótmæla tillögu Evrópusambandsins formlega og undirstrikar að ekki sé hægt að samþykkja að samningsaðilar mæti til viðræðna með svo illa ígrundaða tillögu. Það muni hafa neikvæðar afleiðingar fyrir samband Noregs og ESB.

Erfiðar samningaviðræður

Samningaviðræður strandríkjanna um uppsjávarstofna í Norðaustur-Atlantshafi hafa staðið yfir í áraraðir án niðurstöðu. Ríkin hafa ekki náð samkomulagi um skiptingu árlegs heildarkvóta stofnanna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til. Ríkin hafa því gefið út sína eigin kvóta, sem hefur leitt til þess að verulega hefur verið veitt umfram ráðgjöf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 504,05 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 540,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 475,38 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 210,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 278,41 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 244,47 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.6.25 Særún EA 251 Handfæri
Þorskur 1.464 kg
Ufsi 12 kg
Karfi 11 kg
Keila 1 kg
Samtals 1.488 kg
20.6.25 Finni NS 21 Þorskfisknet
Ýsa 554 kg
Steinbítur 10 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 579 kg
20.6.25 Mávur SI 23 Handfæri
Þorskur 774 kg
Ufsi 4 kg
Ýsa 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 781 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 504,05 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 540,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 475,38 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 210,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 278,41 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 244,47 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.6.25 Særún EA 251 Handfæri
Þorskur 1.464 kg
Ufsi 12 kg
Karfi 11 kg
Keila 1 kg
Samtals 1.488 kg
20.6.25 Finni NS 21 Þorskfisknet
Ýsa 554 kg
Steinbítur 10 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 579 kg
20.6.25 Mávur SI 23 Handfæri
Þorskur 774 kg
Ufsi 4 kg
Ýsa 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 781 kg

Skoða allar landanir »

Loka