Hveravellir heilluðu dómnefnd National Geographic

Þúsundir mynda bárust í keppnina.
Þúsundir mynda bárust í keppnina. Samsett mynd

Enski ljósmyndarinn Justin Cliffe sigraði ljósmyndakeppnina National Geographic Traveller Photography Competition nú á dögunum. Sigurmyndina tók hann á ferðalagi sínu um Víetnam en hún sýnir unga stúlku sitja við hlið langalangömmu sinnar.

„Þetta er einstakt augnablik sem sýnir fegurð og mannkærleika. Litirnir, ljósið og áferðin virka mjög vel,” sagði dómnefndin um sigurmynd Cliffe.

Keppt var í sex flokkum, meðal annars fólk, landslag, dýralíf og matur.

Pólski ljósmyndarinn Pawel Zygmunt stóð uppi sem sigurvegari í flokki landslagsmynda, en hann vann fyrir ljósmynd sem hann tók við Hveravelli á síðasta ári. 

„Myndavélin svífur yfir jarðhitalaug sem líkist drekaauga,” var meðal annars sagt um mynd Zygmunt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert