Manndrápstilraun á 12 tonna lyftara

Maður í Fredrikstad sætir nú ákæru fyrir tilraun til manndráps …
Maður í Fredrikstad sætir nú ákæru fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ekið tólf tonna skotbómulyftara gegn lögreglubifreið í apríl. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Maður nokkur á þrítugsaldri í norska bænum Fredrikstad hefur verið ákærður fyrir manndrápstilraun eftir að hann lagði þar – nær í óviti af mungáti og fíkniefnaneyslu – til atlögu við lögregluþjóna kvöld nokkurt í apríl og ók tæplega tólf tonna skotbómulyftara.

Barst lögreglu tilkynning að kvöldi dags 12. apríl um að vinnuvélinni væri ekið gáleysislega um götur Fredrikstad og héldu lögreglubifreiðar á vettvang til að kanna málið. Hafði maðurinn þá ekið lyftaranum, er hann tók traustataki við Gudeberg-skólann, gegnum girðingu og hélt för sinni áfram yfir Fredrikstad-brúna er liggur yfir ána Glommu.

Var lyftarinn á framkvæmdasvæði við skólann og í eigu fyrirtækisins Sørby Utleie AS.

Brást ókvæða við

Er maðurinn sá tvær lögreglubifreiðar aka sér í mót brást hann ókvæða við, sveigði þungri vinnuvélinni yfir á öfuga akrein og voru lögreglumenn sammála um að hann hefði reynt að aka á aðra bifreiðina er þeim tókst naumlega að víkja undan árekstri. Þetta sagði ákæruvaldsfulltrúi lögreglu, Tore Almenning, í viðtali við norska ríkisútvarpið NRK síðar þá um kvöldið.

Var akstur mannsins svo viðsjárverður að minnstu munaði að hann velti lyftaranum er hann ók honum á fleygiferð gegnum hringtorg í bænum.

Var för hans stöðvuð skammt frá brautarstöðinni og hann færður á lögreglustöð þar sem honum var tilkynnt að hann lægi undir grun fyrir tilraun til manndráps.

Sneru grunsemdum sínum í tvígang

Eftir að maðurinn hafði sætt yfirheyrslu lögreglu varð niðurstaðan sú að grunurinn í garð hans væri um þjófnað, gáleysislegan akstur, að hafa stöðvunarmerki lögreglu að engu, skemmdarverk og akstur undir áhrifum.

Er að ákæru í málinu kom töldu héraðssaksóknarar í Ósló ástæðu til að leggja upphaflegan grun lögreglu til grundvallar og ákærðu fyrir tilraun til manndráps.

Hér hefur maðurinn nýverið ekið gegnum girðingu og stefnir hraðbyri …
Hér hefur maðurinn nýverið ekið gegnum girðingu og stefnir hraðbyri út á vegi Fredrikstad á lyftaranum er hann tók traustataki. Myndskeið/Vegfarandi

Hefur verjandi mannsins, Jostein Løken, sett sig mjög upp á móti þeirri ákvörðun ákæruvaldsins og kveður ekki tilefni til að ákæra fyrir tilraun til manndráps. „Hann kveðst alls ekki hafa hugsað sér að drepa nokkurn mann,“ segir verjandinn við NRK og er nokkur urgur í honum. „Það var víðsfjarri því er hann hugsaði sér,“ fullyrðir hann enn fremur.

Auk tilraunar til manndráps er lyftaraþjófurinn ákærður fyrir að hafa beitt tæki með mikla hættueiginleika gegn lögreglumanni við skyldustörf auk þess að brjóta gegn nokkrum ákvæðum umferðarlaga, en með akstri sínum vann hann tjón á nokkrum bifreiðum auk þess að brjóta rúðu í skólanum.

Verður málið þingfest fyrir héraðsdómi 15. október.

NRK

NRK-II (rætt við ákæruvaldsfulltrúa sama kvöld)

VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert