Handtekinn grunaður um að brjóta gegn börnum

Þýska lögreglan að störfum í Hamborg.
Þýska lögreglan að störfum í Hamborg. AFP/Jonas Walzberg

20 ára maður hefur verið handtekinn í Þýskalandi, grunaður um að þvinga ungmenni í viðkvæmri stöðu til að þóknast honum með kynferðislegum hætti og skaða sig líkamlega að hans skipun. Eitt ungmennið framdi sjálfsmorð í kjölfar samskipta sinna við manninn.

Þjóðverjinn var handtekinn í dag í Hamborg. Hann er grunaður um 120 brot og er meðal annars sakaður um morð. Fórnarlömb mannsins eru í það minnsta átta börn og unglingar. 

Hann er talinn hafa misnotað viðkvæma tilfinningalega stöðu barnanna til að fá þau til að lúta vilja hans um óæskilegar og grófar kynferðislegar athafnir í streymi fyrir hann að sjá.

FBI hafi komið rannsókn af stað

Þjóðverjinn er talinn hafa beitt hótunum um að dreifa efninu, gengju börnin ekki sífellt lengra í að bregðast við skipunum hans um grófar kynferðislegar athafnir og sjálfsskaða.

Í einu tilfelli er hann talinn hafa beitt slík tilfinningalegum áhrifum á fórnarlamb sitt, 13 ára dreng í Bandaríkjunum, að hann framdi sjálfsmorð í kjölfarið.

Alríkislögregla Bandaríkjanna er talin hafa komið rannsókninni af stað í framhaldi af því, með því að gera lögreglu í Þýskalandi viðvart. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert