Íranir gerðu eldflaugaárás á ísraelskt sjúkrahús

Reykur stígur upp frá Soroka-sjúkrahúsinu í Beer Sheva í nótt.
Reykur stígur upp frá Soroka-sjúkrahúsinu í Beer Sheva í nótt. AFP/John Wessels

Íranir gerðu eldflaugaárás á Soroka-sjúkrahúsið í Beer Sheva í suðurhluta Ísraels í nótt. Fjöldi fólks er særður.

Sharren Haskel, aðstoðarutanríkisráðherra Ísraels, segir árásina „vísvitandi“ og „glæpsamlega“ á borgaralegt skotmark.

Heimurinn verður að tjá sig

„Þetta er ekki herstöð. Þetta er sjúkrahús. Þetta er aðal lækningamiðstöðin fyrir allt Negev-svæði Ísraels. Heimurinn verður að tjá sig,“ skrifaði Sharren Haskel á X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert