Utanríkisráðuneyti Rússlands varar Bandaríkin við því að blanda sér í hernaðarátökin á milli Íran og Ísrael með beinum hætti, með því að hefja árásir á Íran.
„Við viljum sérstaklega vara stjórnvöld í Washington við því að beita sér í stöðunni með hernaðarlegum hætti, það er einstaklega hættulegt skref sem gæti haft ófyrirséðar neikvæðar afleiðingar,“ sagði Maria Zakharova, talsmaður utanríkisráðuneytis Rússa, í samtali við blaðamenn í dag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður íhuga árásir á kjarnorkuinnviði Íran til stuðnings Ísraelsmönnum sem hófu loftárásir síðastliðinn föstudag. Íranar svöruðu árásunum strax með loftárásum á Ísrael og hafa árásir gengið á víxl síðustu daga.
Spurður út í málið á blaðamannafundi í gær svaraði Trump með mjög óskýrum hætti.
„Kannski geri ég það, kannski ekki. Ég meina, enginn veit hvað ég mun gera,” sagði forsetinn í gær.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur hvatt leiðtoga Írans og Ísraels til þess að draga úr spennu milli landanna og mælt með því að notast við diplómatískar leiðir. Þá hafa rússnesk yfirvöld boðist til að miðla málum í átökunum en Trump gerði lítið úr því tilboði.