Ræðir ekki við Bandaríkin ef árásir halda áfram

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans.
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans. AFP

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hafnar samningaviðræðum við Bandaríkin á meðan Ísrael heldur áfram árásum sínum á Íran.

Þetta kemur fram í sjónvarpsviðtali við hann.

„Bandaríkjamenn hafa ítrekað sent skilaboð um að þeim sé alvara varðandi samningaviðræður. En við höfum gert þeim ljóst að svo lengi sem árásirnar hætta ekki þá verður ekkert pláss fyrir samningaviðræður,” sagði Arachchi.

Hann mun funda með utanríkisráðherrum Frakklands, Þýskalands og Bretlands í Genf í Sviss í dag.

Boðað var til fund­ar­ins í Genf á sama tíma og Evr­ópu­lönd hafa kallað eft­ir því að Ísra­el og Íran dragi úr árás­um sín­um. Árás­ir milli ríkj­anna hafa haldið áfram linnu­laust síðustu daga en vika er síðan Ísra­el efndi til fyrstu árás­anna á Íran. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka