Lögreglan lýsir eftir Sigríði

Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigríði Jóhannsdóttur, 56 ára, en ekkert er vitað um ferðir hennar síðan á föstudag.

Sigríður, er um 170 cm á hæð, þéttvaxin, gráhærð með rauðar strípur í axlarsíðu hári.  Hún er talin vera klædd í gráum þunnum jakka, sem nær að hnjám, með hettu en blómaútsaumuðum ermum. Hún er klædd í svarta skó og með litríka hliðartösku, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigríðar eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka