Fjórir bæjarfulltrúar útskrifuðust um helgina

Díönu má sjá í efra vinstra horninu og Sverri Bergmann …
Díönu má sjá í efra vinstra horninu og Sverri Bergmann má sjá í efra hægra horninu. Niðri til vinstri er Sigurrós og niðri til hægri er Halldóra Fríða. Samsett mynd/mbl.is/Facebook

Síðustu daga hafa fjölmargar útskriftarveislur verið haldnar víða um land í tilefni af brautskráningu nemenda úr háskólum og framhaldsskólum. Í Reykjanesbæ vakti sérstaka athygli að fjórir af ellefu bæjarfulltrúum útskrifuðust nú um helgina af ólíkum sviðum.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri, lauk meistaragráðu í menntavísindum, Sverrir Bergmann Magnússon meistaragráðu í stjórnun, Sigurrós Antonsdóttir útskrifaðist sem lögreglumaður og Díana Hilmarsdóttir lauk meistaragráðu í geðheilbrigðisfræðum.

Vert er að taka fram að öll útskrifuðust þau frá Háskólanum á Akureyri.

Hér má sjá Díönu og Sverri saman á útskriftinni.
Hér má sjá Díönu og Sverri saman á útskriftinni. Ljósmynd/Aðsend

Nýtti kvöld og helgar

Þótt bæjarfulltrúastaða sé ekki fullt starf, hefur Halldóra gegnt starfi bæjarstjóra nær samfellt frá því í september, þegar Kjartan Már Kjartansson fór í veikindaleyfi.

Í samtali við mbl.is segir Halldóra að hún hafi nýtt kvöld og helgar til að ljúka lokaverkefni sínu samhliða starfinu. Hún er grunnskólakennari að mennt og sótti um námsleyfi á nýliðnu skólaári til að ljúka náminu, en hefur því ekki verið í sinni venjulegu dagvinnu frá 1. ágúst.

„Ég var að skrifa lokaverkefni út frá mínu starfi þannig það létti á að skrifa um hluti sem maður er vel kunnugur,” segir hún.

Verkefnið fjallaði um móttöku barna sem tala annað tungumál en íslensku við upphaf skólagöngu.

Halldóra segist upphaflega hafa ætlað að fresta skilum vegna anna í bæjarstjórastarfi, en þegar Kjartan Már sneri tímabundið til baka í rúman mánuð í ársbyrjun, nýtti hún tímann til að klára verkið.

Bæjarstjórn með fjölbreytta þekkingu

Þegar hún er spurð hvort aukin menntun bæjarfulltrúa nýtist í starfi segir hún svo vera:

„Alveg pottþétt og við erum auðvitað með hérna fleiri aðila í bæjarstjórn sem hafa mjög fjölbreytta menntun. Við erum með doktorsnema líka, hjúkrunarfræðing, félagsráðgjafa og ég veit ekki hvað og hvað ekki. Þannig að við erum bara með ótrúlega öfluga bæjarstjórn sem hefur mjög fjölbreytta þekkingu og reynslu, sem betur fer,” segir hún.

Fólk eigi að læra ef áhuginn er til staðar

Spurð hvort það séu ekki einhver skilaboð í þessu til fólks um að halda áfram að sækja sér menntun, segir Halldóra svo sannarlega vera. Hún bendir jafnframt á að Kjartan Már hafi sjálfur nýlokið námi sem viðurkenndur stjórnarmaður þrátt fyrir veikindaleyfi.

„Ef maður hefur áhuga þá á maður að sjálfsögðu að halda áfram að læra allt lífið,” segir hún.

Aðspurð viðurkennir hún að það hafi reynt á að sinna bæði starfi og námi, en að hún hafi ætíð sett ábyrgð sína sem starfandi bæjarstjóri í forgang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert