Bláfugl greiði 55 milljónir í skaðabætur

Landsréttur hefur dæmt Bláfugl ehf. til að greiða 10 fyrrverandi flugmönnum félagins samtals 55,5 milljónir króna í skaðabætur vegna ólögmætra uppsagna. 

Í lok desember árið 2020 var öllum fastráðnum flugmönnum félagsins, sem tóku kjör kjarasamnings FÍA og Bláfugls, sagt upp störfum með þriggja mánaða fyrirvara.

Með dómi Félagsdóms í september 2021 var fallist á að uppsagnirnar hefðu verið ólögmætar þar sem þær brytu gegn ákvæði a-liðar 4. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur.

Hærri bætur

Héraðsdómur Reykjaness hafði dæmt Bláfugl til að greiða flugmönnunum 10 samtals 30 milljónir kr. í skaðabætur í dómum sem féllu í júlí í fyrra. Landsréttur staðfestir bótakröfuna en hækkar hana um samtals 25 milljónir kr. 

Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að til úrlausnar væri hvort Bláfugl hefði með uppsögnum brotið gegn forgangsréttarákvæðum og starfsaldursreglum kjarasamnings FÍA og Bláfugls þannig að leiddi til bótaskyldu félagsins.

Uppsagnirnar orsök tekjutaps

Lagt var til grundvallar að Bláfugl hefði, með því að fá aðra flugmenn sem stóðu utan FÍA til að takast á hendur störf við flug til Íslands og frá því, brotið gegn samningsskyldum sínum gagnvart flugmönnunum með þeim hætti að félagið væri skaðabótaskylt.

Af gögnum málsins mætti ráða að tekjur flugmannanna hefðu lækkað umtalsvert eftir að uppsagnarfresti lauk og því ljóst að þeir hefðu orðið fyrir tjóni þar sem Bláfugl virti ekki forgangsrétt þeirrar til flugstarfa. Uppsagnirnar væru orsök tekjutap þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert