Það sem af er árinu 2025 hafa tveir heilbrigðisstarfsmenn verið sviptir starfsleyfi að sögn Embættis landlæknis.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættisins og fjallað er um sviptingar starfsleyfa á árunum 2016-2024.
Þar segir að átta hafi verið sviptir slíku leyfi í fyrra, einn árið 2023, þrír árið 2022 og fimm árið 2021. Sjá nánar hér.
Í tilkynningu landlæknis segir, að ef eingöngu sé litið til ársins 2024 og þess sem af er 2025 þá sé um að ræða einstaklinga í sex heilbrigðisstéttum.
„Algengasta ástæða sviptingar starfsleyfis á þessu tímabili er lyfjastuldur úr birgðum vinnustaðar. Aðrar ástæður eru óheimilar uppflettingar í sjúkraskrá, útgáfa rangra reikninga til Sjúkratrygginga, rekstur heilbrigðisþjónustu án tilskilinna heimilda, skjalafals og að heilbrigðisstarfsmaður sé ekki talinn hæfur til að gegna starfi sínu, t.d. vegna vanrækslu í starfi, áfengisnotkunar eða veikinda,“ segir í tilkynningunni.
Tekið er fram að svipting starfsleyfis sé alvarlegasta úrræði sem landlæknir geti gripið til gagnvart heilbrigðisstarfsmanni og sé ekki beitt nema ljóst þyki að önnur úrræði eigi ekki við.
Heilbrigðisstarfsmaður sem sviptur er starfsleyfi hefur þrjá mánuði til að kæra slíka ákvörðun til heilbrigðisráðuneytis.
„Heilbrigðisstarfsmaður sem sviptur hefur verið starfsleyfi getur sótt um endurveitingu leyfisins geti hann sýnt fram á að hann uppfylli skilyrði laga fyrir endurveitingu og að þær ástæður sem leiddu til sviptingar eigi ekki lengur við.
Embætti landlæknis birtir á heimasíðu sinni starfsleyfaskrá með nöfnum allra heilbrigðisstarfsmanna sem hafa starfsleyfi landlæknis,“ segir enn fremur í tilkynningu embættisins.