
Kristinn Jóhann Ólafsson fæddist 19. apríl 1969. Hann lést 11. maí 2025.
Útför Kristins fór fram 27. maí 2025.
Það er með óbærilegri sorg í hjarta sem ég smám saman geri mér grein fyrir því að Kiddi félagi minn er fallinn frá. Það voru hjartnæmar kveðjustundirnar í lok maí eftir að boðin komu um að það væri ekki langt eftir af hetjulegri baráttunni við krabbameinið sem hann hafði barist við í 18 mánuði. Æðruleysi og þakklæti Kidda fyrir tímann sem hann fékk með fjölskyldu sinni var mikill styrkur þegar kom að hinstu kveðjustund og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifærið að þakka honum fyrir 39 ár af ógleymanlegri og einstakri vináttu.
Ég kynntist Kidda í bæjarvinnunni á Klambratúni sumarið 1986 og skemmst er frá því að segja að við eyddum mörgum stundum saman það sumarið. Vináttan var sterk
...