Heimatilbúnar þjáningar

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is.
Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is. Ljósmynd/Kári Sverriss

Blíðviðrið síðustu vikur hefur líklega ekki farið framhjá neinum. Það hefur ekki bara haft jákvæð áhrif á lund landsmanna heldur hefur allt vaxið og dafnað, tún grænkað og blóm blómstrað. Garðeigendur hafa ýmsum skyldum að gegna sem ekki er hægt að hundsa.

Á mínu heimili þarf að bera á glugga, verönd og skjólveggi. Auk þess er hluti af húsinu með viðarklæðningu sem drekkur í sig efni eins og enginn sé morgundagurinn þökk sé gulum og appelsínugulum viðvörunum sem komu á færibandi í vetur.

Ég ætla nú ekki að halda því fram að þessi vinna taki allt sumarið, þetta eru svona tveir til þrír dagar. Andlegur undirbúningur tekur hins vegar mun lengri tíma, jafnvel alveg þrjá til fjóra mánuði. Það þarf að ræða hvar við eigum að byrja og hvar við eigum að enda. Hvaða hluti af húsinu sé verst farinn eftir veturinn og þar fram eftir götunum.

Á dögunum sagði vinur okkar, sem er málari, að við gætum sparað okkur heilmikinn tíma með því að bera annað efni á húsið. Ef við tækjum mið af ráðum hans myndum við sleppa við allt þetta stúss næsta sumar, þarnæsta sumar og jafnvel þarþarnæsta sumar. Það hljómaði náttúrlega of vel til að vera satt.

Síðustu ár hefur lífið í garðinum verið þannig að við erum alltaf að bera á húsið þegar vel viðrar, það er að segja þessa þrjá daga sem hanga þurrir. Hversu fyndið er það að eiga garð en geta aldrei flatmagað þar líkt og fólk væri á sólarströnd, með lappirnar upp í loft og bók í hönd. Málaravinur okkar hefur líka sagt það óbeint að hann gæti nú alveg tekið þetta verkefni að sér gegn greiðslu, en ég tek það ekki í mál. Ég verð að fá að ganga í gegnum þessa þjáningu og finna fyrir henni í öllum frumum líkamans. Þetta er ekki ósvipað því að fara í endurvinnsluna. Þangað fer ég reglulega með dósir til þess að fá óþægilega tengingu við raunveruleikann. Um daginn spurði ég manninn minn á laugardegi hvort við ættum ekki að fara saman í endurvinnsluna og hann sagði nei. Þessi viðbrögð hristu upp í mér. Hvað átti hann við? Þá kom í ljós að honum finnst tíma sínum illa varið með því að keyra í annað bæjarfélag þegar hægt er að gefa börnum dósir í fjáröflunarskyni þegar þau banka upp á.

Þetta var auðvitað alveg rétt hjá honum en ég er bara ekki komin á þennan stað. Ég þarf að taka út refsingu fyrir ofdrykkju á Diet Pepsi. Berja aðeins á mér. Ég þarf líka að verða fyrir vonbrigðum þegar ég átta mig á því að fyrirferðarmiklir plastpokar með dósum, sem virðast alltaf ryksuga allt rými í bílskúr, duga ekki fyrir hamborgaratilboði fyrir fjóra úr lúgusjoppu. Samt snýst þetta ekki um peninga. Þegar ég er búin að jafna mig á vonbrigðunum yfir því hvað það kom lítill peningur inn á kortið líður mér samt svo vel. Finnst ég loksins hafa gert gagn.

Í málningarversluninni þar sem við vorum mætt á laugardegi til að kaupa töfraefnið rakst ég á fólk eins og okkur.

Elskulegt afgreiðslufólk leiddi okkur í allan sannleikann um töfraefnið sem á að bjarga okkur úr refsivistinni. Eftir langan fyrirlestur um að þetta væri í raun tvíþætt. Það þyrfti fyrst að bera eitt efni á, eina umferð, og svo þyrfti að bera annað efni á og best væri að taka allavega tvær umferðir til að fullkomna verkið. Ég fann hvernig lífsorka mín fjaraði út hægt og bítandi. Það var heldur ekki laust við að ég væri komin með mildan bakverk við tilhugsunina um að þetta sumarið yrðu þetta ekki bara tveir til þrír dagar heldur tíu dagar, tvær vikur. Maðurinn minn tók stjórnina og sagði að við ætluðum að kaupa þetta allt og æddi að kassanum. Því miður eru efnin svo umhverfisvæn að það er ekki einu sinni hægt að sniffa þau til að reyna að lina heimatilbúnar þjáningar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda