Saga Garðars klæddist aðeins blúndu í Cannes

Liturinn á blúndunni er fallega appelsínugulur án þess að vera …
Liturinn á blúndunni er fallega appelsínugulur án þess að vera of æpandi. Samsett mynd

Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir hefur notið sín á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi undanfarna daga. Hún er stödd þar ásamt fríðu föruneyti við kynningu á myndinni Ástin sem eftir er sem Saga leikur aðalhlutverkið í.

Saga lét nýja nektarbannið á rauða dreglinum ekki hafa áhrif á sig og fór elegant leið í klæðaburði. Hún fékk fatahönnuðinn Sigríði Ágústu Finnbogadóttur til að sauma á sig kjól.

Saga hefur ekki mætt annarri í eins kjól.
Saga hefur ekki mætt annarri í eins kjól. Skjáskot/Instagram

Nútímaleg hönnun

Kjóllinn sem Sigríður hannaði var úr appelsínugulri blúndu. Á kjólnum var áföst slæða um hálsinn sem var vafin um höfuð hennar sem gerði blúnduna nútímalega. Blúnduefni er vandmeðfarið þar sem það getur þótt gamaldags en Sigríði tókst að gera kjól Sögu stórkostlegan.

Skór Sögu eru frá íslenska skómerkinu Kalda og eru rauðir sandalar með smá hæl. 

Sigríður hefur verið búningahönnuður söngkonunnar Bríetar í nokkurn tíma en hefur einnig unnið með söngkonunni Guðrúnu Ýri Eyfjörð. Hún hefur á stuttum tíma orðið einn vinsælasti fatahönnuður landsins þegar kemur að sérsaumi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda