Declan Rice skoraði glæsilegt sigurmark Arsenal í 1:0-sigri á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Markið kom á 55. mínútu þar sem Rice lét vaða fyrir utan vítateig eftir undirbúning Martins Ödegaards og hnitmiðað skotið söng í fjærhorninu.
Með sigrinum tryggði Arsenal annað sæti deildarinnar og um leið sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.